Borgarhólsskóli

Borgarhólsskóli

Til athugunar

ÓVEÐUR - ÓFÆRÐ
Skóla verður ekki aflýst vegna veðurs og ófærðar nema í undantekningartilfellum. Það verður að vera mat foreldra hvort þeir haldi börnum sínum heima eða ekki. Ef börn eru heima er nauðsynlegt að láta vita í skólann í síma 464 6140.
 
Á LEIÐ Í OG ÚR SKÓLA
Nemendur eru á ábyrgð foreldra/forráðamanna sinna á leið í og úr skóla.
Umferðaröryggi: Foreldrar þurfa að ræða við börn sín og velja heppilega leið í skólann með þeim yngri.
 
BÍLSTJÓRAR
Innkeyrsla og bílastæði eru norðan við skólann. Óheimilt er að aka inn á skólalóð nema í neyðartilvikum. Akið ekki að nýja anddyri um Skólagarð nema aka þurfi hreyfihömluðum í skólann, flytja vörur o.s.frv. Starfsmannabílastæði eru m.a. við Skólagarð. Bifreiðastöður eru bannaðar í innkeyrslunni að Borgarhóli. Sýnið aðgát við skólann.
 
MJÓLK
Mjólk er seld í skólanum með skólaafslætti í samráði við M.S.K.E.A. ehf. Eingöngu nemendur 8., 9. og 10. bekkjar geta keypt brauð og drykk í frímínútum.
 
EFNISGJALD
Með samþykki foreldrafélagsins útvegar skólinn nemendum 1.-7. bekkjar stílabækur o.þ.h. gegn vægu gjaldi sem innheimt er í desember. Nemendur 8., 9. og 10. bekkjar hafa aðrar þarfir og kaupa sínar stílabækur sjálfir og greiða þess vegna ekki efnisgjald.
 
FJÁRMUNIR
Nemendur skulu ekki vera með fjármuni í vösum yfirhafna.
 
FATNAÐUR
Fatnaður á að vera merktur sem og aðrar eigur nemenda.
 
UMGENGNI
Umgengni í skólanum hefur yfirleitt verið góð. Þar má ekki slaka á.

Upplýsingar um vefkerfi

moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning