Frá skólahjúkrunarfræðingi
Skólaheilsugæslan og verksvið hennar:
Skólaheilsugæslan er hluti af heilsugæslunni og framhald af ung- og smábarnavernd. Markmið
skólaheilsugæslunnar er að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Starfsfólk skólaheilsugæslunnar vinnur í
náinni samvinnu við foreldra/forráðamenn, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda með velferð nemenda að
leiðarljósi. Þannig stuðlað að því að börn fái að vaxa, þroskast og stunda nám sitt við bestu líkamlegu og
andlegu skilyrði. Starfsemi skólaheilsugæslunnar er skv. lögum, reglugerðum og tilmælum sem um hana gilda. Í henni felast skoðanir,
bólusetningar og heilbrigðisfræðsla, ásamt ráðgjöf til nemenda, fjölskyldna þeirra og starfsfólks skólans. Farið er
með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.
Heilbrigðisfræðsla er einn af mikilvægustu þáttum í heilsuvernd
grunnskólabarna. Markmið fræðslunnar er að auka þekkingu nemenda á heilsu og þáttum sem hafa áhrif á
hana. Heilbriðisfræðslan getur þannig haft jákvæð áhrif á viðhorf og stuðlað að heilbrigðum
lífsstíl. 6H- heilsunnar er samstarfsverkefni Miðstöðvar heilsuverndar barna og Lýðheilsustöðvar. Markmið verkefnisins er að
útbúa kennslugögn fyrir starfsfólk skólaheilsugæslunnar til að nota við heilbrigðisfræðslu og þannig stuðla að aukinni og
samræmdri heilbrigðisfræðslu í grunnskólum landsins. Sú hugmynd sem höfð er að leiðarljósi er að börnin læri
í gegnum athafnir og því fylgja oft sérstök verkefni með hverri fræðslu. Einnig er lögð áhersla á það
jákvæða frekar en vera með hræðsluáróður, ásamt því að virkja foreldra/forráðamenn með því að
senda börnin heim með fréttabréf.
Skólahjúkrunarfræðingur hefur aðsetur í skólanum alla virka daga frá kl:
8(9)-12. Símanúmer skólans er 464-6140.
Heilsufarseftirlit og fræðsla:
1. Bekkur: Hollusta, hreinlæti(tannheilsa og handþvottur), hreyfing/hjálmafræðsla, Hæðar- og þyngdarmæling, sjón- og
heyrnarpróf.
2. Bekkur: Hvíld og hamingja. Hæðar- og þyngdarmæling, sjónpróf.
3. Bekkur: Hollusta og hreyfing.
4. Bekkur: Slysavarnir, hreinlæti(tannheilsa), hamingja-Sjálfsmynd, læknisskoðun, hæðar- og þyndarmæling, sjón-og
litaskynspróf.
5. Bekkur: Hreyfing, hollusta, hamingja og samskipti. Hæð- og þyngdarmæling.
6. Bekkur: Kynþroskinn,
7. Bekkur: Hugrekki, hreinlæti(tannheilsa). Hæð- og þyndarmæling, sjónpróf, bólusetning(gegn Rauðum hundum, Mislingum og
Hettusótt).
8. Bekkur: Hollusta og hreyfing. Hugrekki
9. Bekkur: Kynfræðsla, læknisskoðun, hæðar- og þungdarmæling, sjónpróf, bólusetning( gegn Mænusótt, Barnaveiki
og ‚Stífkrampa).
10. Bekkur: Blóðþrýstingmæling og viðtal. Kynning á heilsugæslunni.
Lyfjaumsjón:
Skólahjúkrunarfræðingur hefur umsjón með lyfjagjöfum skólabarna í
samráði við foreldra og metur þörf fyrir verkjalyf í samráði við foreldra. Ef nemandi þarf verkjalyf utan viðverutíma
skólahjúkrunarfræðings, skal leitað til umsjónakennara. Börn skulu ekki hafa lyf undir höndum í skólanum nema í
undantekningartilfellum og þá í samráði við kennara og skólahjúkrunarfræðing. Slíkar lyfjagjafir geta t.d. verið
ofnæmissprautur, insúlingjafir og ofvirknilyf.
Slys og veikindi:
Mikilvægt er að skólaheilsugæslan viti af börnum sem eru með langvinna og/eða alvarlegan
sjúkdóm s.s. sykursýki, ofnæmi, flogaveiki og blæðingarsjúkdóma. Ef óhapp eða slys verða á skólatíma
sér skólahjúkrunarfræðingur eða starfsfólk skólans um fyrstu hjálp. Ef nemandi þarf að fara á
heilsugæslustöð er reynt að ná í foreldra/forráðamenn sem geta þá fylgt barninu, en ef um mjög alvarleg veikindi eða slys er um
að ræða og barn þarf að fara strax á heilsugæslustöð, þá fylgir starfsmaður skólans barninu, ef þess
þarf.
Mjög mikilvægt er því að skólinn hafi öll símanúmer þar sem hægt er
að ná í foreldra/forráðamenn barnsins.
Tannvernd:
Skólaheilsugæslan býður öllum nemendum skólans upp á flúorskol ½
mánaðarlega og þurfa foreldrar að láta vita ef barn á ekki að fá flúor.
Lús:
Ef upp kemur lús í skólanum er send tilkynning um það heim ásamt leiðbeiningum um
meðferð. Kembing og meðferð er á ábyrgð foreldra og mikilvægt að foreldrar skoði hár barna sinna reglulega. Einnig er nauðsynlegt
að láta skólahjúkrunarfræðing eða kennara vita ef barn fær lús.
Svefn barna:
Til að börnum líði vel og séu hæf til að takast á við verkefni dagsins þurfa
þau nægan svefn, en svefnþörf skólabarna er 8-10 klst. á sólahring
Líðan barna:
Til að njóta sín í námi verður barninu að líða vel í
skólanum. Skólaheilsugæslan hvetur foreldra til að vera vakandi yfir líðan barna sinna og spyrja þau reglulega um líðan
sína, einnig hafa það hugfast að hrós og hvatning styrkja jákvæða hegðun og auka vellíðan. Foreldrar geta ávallt
leitað ráðgjafar hjá skólaheilsugæslunni varðandi andlegt, líkamlegt og félagslegt heilbrigði barnsins.
Með kveðja og ósk um gott samstarf
Brynhildur Gísladóttir skólahjúkrunarfræðingur Borgarhólsskóla



