Vefur Borgarhólsskóla

Næðisver

Búið er að opna Næðisver í Borgarhólsskóla. Markmiðið með því er að bjóða nemendum sem eiga erfitt með einbeitingu inn í bekk að fara úr aðstæðum um stund hvort heldur er til að læra eða slaka á. Hægt er að fá aðstoð við verkefnavinnu, lesa, hlusta á slökunartónlist eða eiga létt spjall við starfsmann. Næðisverið er staðsett í Skólaseli og til að byrja með er opið milli kl. 9:30 og 11:15 alla daga.  Lokað er í frímínútum.

Næðisverið er tilraunaverkefni.



Svæði

Borgarhólsskóli | Skólagarði 1 | 640 Húsavík | sími: 464 6140 | fax: 464 2133 | kennitala: 671088-9649 | skoli[hjá]borgarholsskoli.is