INNRITUN Í FRAMHALDSNÁM

Innritun í framhaldsskóla
Innritun í framhaldsskóla
Forinnritun nemenda í 10. bekk (fæddir 2001 eða síðar) hefst mánudaginn 6. mars og lýkur mánudaginn 10. apríl. Í grunnskólum sínum fá nemendur afhent bréf frá Menntamálastofnun sem inniheldur leiðbeiningar um umsóknarferlið og veflykil sem gengur að umsókn á Menntagáttinni. Foreldrar/forráðamenn nemenda fá bréf frá Menntamálastofnun með upplýsingum um innritunina sent á lögheimili sitt. Nemendur í 10. bekk eru eindregið hvattir til að taka þátt í forinnrituninni.

Forinnritun nemenda í 10. bekk (fæddir 2001 eða síðar) hefst mánudaginn 6. mars og lýkur mánudaginn 10. apríl. Í grunnskólum sínum fá nemendur afhent bréf frá Menntamálastofnun sem inniheldur leiðbeiningar um umsóknarferlið og veflykil sem gengur að umsókn á Menntagáttinni. Foreldrar/forráðamenn nemenda fá bréf frá Menntamálastofnun með upplýsingum um innritunina sent á lögheimili sitt.
Nemendur í 10. bekk eru eindregið hvattir til að taka þátt í forinnrituninni.

Rafræn innritun á starfsbrautir fyrir fatlaða stendur yfir. Stefnt er að afgreiðslu allra umsókna á starfsbrautir fyrir lok apríl. Lista yfir skóla sem bjóða upp á starfsbrautir fyrir fatlaða er að finna undir flipanum upplýsingar á vef Menntamálastofnunar.

Lokainnritun nemenda í 10. bekk verður 4. maí til 9. júní. Nemendur í 10. bekk hafa frest til sækja um nám í framhaldsskóla eða breyta umsóknum úr forinnritun til miðnættis föstudaginn 9. júní. Einkunnir þeirra verða sendar rafrænt frá grunnskólum til framhaldsskóla eftir skólaslit. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 514 7500 eða með því að senda tölvupóst á netfangið  innritun@mms.is. Sjá tengil hér á síðunni til hægri.

Kynningarmynd um innritun í framhaldsskóla má finna HÉR.

Nemandi í 9. bekk sem óskar eftir útskrift úr grunnskóla til að innrita sig í framhaldsskóla þarfnast samþykkis skólastjóra hverju sinni.


Athugasemdir