18. október 2011
Kennari óskast til starfa í Borgarhólsskóla
Um er að ræða umsjónarkennslu á yngsta stigi, 100% stöðu frá 4.janúar 2012
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur og foreldra.
- Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Hæfniskröfur
- Kennarapróf.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Faglegur metnaður.
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
- Æskilegt að viðkomandi hafi reynslu af umsjónarkennslu.
Umsóknarfrestur er til 27.október 2011
Umsóknum má skila í gegnum tölvupóst á netfang skólastjóra.
Nánari upplýsingar um starfið veitir skólastjóri Þórgunnur R. Vigfúsdóttir í síma 4646140 eða í gegnum tölvupóst threyk@borgarholsskoli.is.