Klippt, límt & litað í áratugi

Piparkökuþorpið
Piparkökuþorpið
Það er löng hefð fyrir Verkstæðisdeginum í Borgarhólsskóla. Hann byrjaði sem fastur liður í skólastarfinu fyrir kjör fyrstu konu í forsetaembætti. Skólastarfið er með afar óhefðbundu sniði þennan dag, nemendur mæta með foreldrum, öfum og ömmum, systkinum, frændum og frænkum. Skólinn er jafnframt öllum opinn þennan skemmtilega dag.

Gjafaaskja, origami, luktir, gluggamyndir, jólatré og svo margt fleira sem fólk gat föndrað. Allt þetta og miklu fleira einkennir Verkstæðisdag Borgarhólsskóla. Kennslustofum er breytt í verkstæði þar sem nemendum er boðið að föndra jólaskraut eða gjafir ásamt fjölskyldum og vinum.

Nemendur á unglingastigi sem eru í heimilisfræðivali unnu að hönnun og gerð piparkökuhúsa sem voru til sýnis. Dómnefnd valdi hús Þorra Gunnarssonar sem flottasta húsið í ár.

Nemendur 10. bekkjar opna kaffihús í sal skólans og selja heimatilbúna mæru. Gestir gátu gætt sér á kleinum, vöfflum með rjóma og fengið rjúkandi heitt og gott súkkulaði.

Borgarhólsskóli var fullur af brosandi fólki í dag sem flakkaði á milli verkstæða og reglulega ánægjulegt að sjá fjölskyldur föndra saman hvers konar muni.

„Það er bara svo gaman að koma í heimsókn á þessum segi“, sagði ein móðir sem horfði stolt á dóttur sín föndra fallegan hlut. Það var líka skemmtilegt að sjá nemendur Framhaldsskólans á Húsavík vappa um skólann, líma, lita og klippa eftir að hafa þreytt próf um morguninn og rifja upp gamla takta.

Nemendur Tónlistarskóla Húsavíkur koma fram og spila jólalögin fyrir gesti, fylla foreldra stolti og draga fram létt og fallegt bros á hverjum sem heyra vill.

Markmiðið með deginum er að efla sköpunarhæfni og – gleði og styrkja um leið tengsl heimilis og skóla.

Húsið hans Þorra sem var metið flottasta húsið í ár

Athugasemdir