Laus störf

Borgarhólsskóli er tæplega 300 barna skóli á Húsavík. Þar fer fram metnaðarfullt skólastarf og áhersla er lögð á jákvæð samskipti og samveru. Unnið er að ýmsum áhugaverðum þróunarverkefnum og innleiðingu uppeldisstefnunnar Jákvæður agi.

Borgarhólsskóli er tæplega 300 barna skóli á Húsavík. Þar fer fram metnaðarfullt skólastarf og áhersla er lögð á jákvæð samskipti og samveru. Unnið er að ýmsum áhugaverðum þróunarverkefnum og innleiðingu uppeldisstefnunnar Jákvæður agi. Skólasýn, stefnu skólans og fleiri upplýsingar um skólastarfið er hægt að nálgast á heimasíðu skólans http://www.borgarholsskoli.is

Við leitum að starfsfólki sem:

  • hefur áhuga á kennslu og vinnu með börnum
  • treystir sér í faglega og metnaðarfulla vinnu
  • hefur lausnamiðaða nálgun á viðfangsefnum
  • er sveigjanlegt
  • er sjálfstætt í vinnubrögðum og sýnir eða býr yfir frumkvæði
  • hefur jákvæðni og starfsgleði að leiðarljósi.

Umsækjendur verða einnig að:

  • vera skipulagðir, stundvísir, heilsuhraustir og snyrtilegir í umgengni
  • hafa færni til jákvæðra samskipta við nemendur, foreldra og samstarfsfólk 

Myndmenntakennari/Listgreinakennari

Óskum eftir myndmenntakennara í afleysingar í myndmennta- og listgreinakennslu frá 1.ágúst 2014 til 31.júlí 2015.

Þroskaþjálfi óskast

Óskum eftir að ráða þroskaþjálfa í 80-100% starf. Umsækjendur þurfa að hafa lokið þroskaþjálfanámi.  Við leitum eftir öflugri fagmanneskju til að starfa með nemendum á á öllum stigum í skóla margbreytileikans við hin ýmsu verkefni.

Í starfinu felst m.a.

  • skipulag á kennslu
  • skipulag á þjálfun
  • aðstoða við athafnir daglegs lífs
  • aðstoða við félagslega þátttöku.

Skólaliði

Laust er til umsóknar starf skólaliða, 60-85% starfshlutfall. 

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur um öll störfin er til 12. maí 2014

Umsóknum skal skila í tölvupósti á netfangið threyk@borgarholsskoli.is
Ferilskrá skal fylgja umsókn sem og afrit af prófskírteinum.
Allar frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá skólastjóra Þórgunni R. Vigfúsdóttur í síma 4646140.

 


Athugasemdir