Sigraði í grunnskólakeppni Tónkvíslar

Friðrika á sviðinu
Friðrika á sviðinu
Síðastliðna helgi fór fram hin árlega söngkeppni Tónkvíslin, söngkeppni Framhaldsskólans á Laugum. Nemendur í grunnskólum á svæðinu geta jafnframt tekið þátt. Nokkrir nemendur úr Borgarhólsskóla tóku þátt og stóðu sig vel.

Friðrika Bóel Jónsdóttir nemandi í 7. bekk skólans tók þátt og sigraði grunnskólakeppnina. Hún söng lagið Torn sem Natalie Imbruglia gerði frægt fyrir nokkrum árum. Hafdís Inga Kristjánsdóttir sem er jafnframt nemandi í 7. bekk skipaði 3. sæti keppninnar með lagið Made of stars.

Friðrika Bóel (t.v.) og Hafdís Inga (t.h.)

Myndir af facebook

Athugasemdir