Stærsta dýr Jarðar

Drengir úr 8. bekk í hvalnum
Drengir úr 8. bekk í hvalnum
Nemendur 8. bekkjar fór í heimsókn í Hvalasafnið í vikunni að skoða grindina af steypireyðinni sem nú er komin til sýningar í safninu.

Nemendur 8. bekkjar fóru í heimsókn í Hvalasafnið í vikunni að skoða grindina af steypireyðinni sem nú er komin til sýningar í safninu.

Í samfélagsfræði vinna nemendur verkefni og fræðast um höfin. Þeir fjalla um hvernig bylgjur myndast, hversu langan tíma það tekur plast að brotna niður í hafinu, hversu mörg störf á Jörðinni tengjast hafinu, o.fl.

Í náttúrufræði vinna nemendur með sjávardýr og sérstaklega sjávarspendýr. Það var því við hæfi að skoða beinagrindina af stærsta dýri Jarðar.


Athugasemdir