Stóra upplestrarkeppnin 2014 í Þingeyjarsýslum

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk grunnskóla í Suður-Þingeyjarsýslu verður haldin í Safnahúsinu Húsavík föstudaginn 28. mars n.k. og hefst kl. 14:00.

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk grunnskóla í Norður-Þingeyjarsýslu og frá Vopnafirði verður haldin í Félagsheimilinu Hnitbjörgum á Raufarhöfn fimmtudaginn 27. mars n.k. og hefst kl. 14:00.
Keppendur eru nemendur úr 7. bekk Öxarfjarðarskóla, Grunnskóla Þórshafnar, Grunnskóla Bakkafjarðar og Vopnafjarðarskóla

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk grunnskóla í Suður-Þingeyjarsýslu verður haldin í Safnahúsinu Húsavík
föstudaginn 28. mars n.k. og hefst kl. 14:00 . Keppendur eru nemendur úr 7. bekk Borgarhólsskóla, Þingeyjarskóla og Reykjahlíðarskóla.

Á milli upplestraratriða koma fram nemendur úr Tónlistarskólunum á svæðinu og flytja tónlist.
Foreldrar og aðrir velunnarar skólanna eru hvattir til að koma og hlýða á það sem nemendurnir hafa fram að færa.

Fh.
Undirbúningsnefndar

Sigurður og Árný Þóra

Skólaþjónustu
Norðurþings


Athugasemdir