Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar

Lesarar dagsins
Lesarar dagsins
Í dag fór fram undankeppni skólans vegna Stóru upplestrarkeppninnar. Verkefnið sjálft hefst ár hvert á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember. Tíu nemendur 7. bekkjar öttu kappi í upplestri en keppnin fór fram í Sal skólans.

Í dag fór fram undankeppni skólans vegna Stóru upplestrarkeppninnar. Verkefnið sjálft hefst ár hvert á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember. Tíu nemendur 7. bekkjar öttu kappi í upplestri en keppnin fór fram í Sal skólans.

Það eru Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn sem standa fyrir keppninni á landsvísu en umsjón með verkefninu er í höndum skólaskrifstofa í hverju héraði.

Markmið með upplestrarkeppni er að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði. Keppnin sjálf er í rauninni aukaatriði og forðast skyldi að einblína á sigur. Mestu skiptir að kennarar nýti þetta tækifæri til að leggja markvissa rækt við einn þátt móðurmálsins með nemendum sínum, vandaðan upplestur og framburð, og fái alla nemendur til að lesa upp, sjálfum sér og öðrum til ánægju. Stefnt skyldi að því að allur upplestur í tengslum við keppnina sé fremur í ætt við hátíð en keppni.

Á hátíðinni í dag voru lesarar þau, Alexandra Maria Traustadóttir, Aþena Marey Ingimarsdóttir, Birkir Guðnýjarson, Dagbjört Lilja Daníelsdóttir, Ester Eva Ingimarsdóttir, Friðrika Bóel Jónsdóttir, Inga Lilja Snorradóttir, Klara Hrund Baldursdóttir, Maríanna Rín Snæbjörnsdóttir og Tryggvi Grani Jóhannsson.

Fulltrúar skólans í lokakeppninni verða þau Dagbjört Lilja, Ester Eva, Friðrika Bóel og Klara Hrund. Lokakeppnin fer fram í Safnahúsinu 24. mars næstkomandi.

Upplesarar dagsins


Athugasemdir