Skólaárinu lokið hjá nemendum

Skólaárinu 2025-2026 er lokið hjá nemendum. Nemendur fyrsta til og með níunda bekkjar hittu kennarana sína í dag í hverskonar uppbroti, komu saman á söngsal og endað í pitsahlaðborði. Þórgunnur Reykjalín skólastjóri ræddi þar við nemendur á sal og hvatti krakkana til dáða, það eru alltaf tækifæri til bætingar í öllu. Að því loknu voru sungin nokkur lög. Umsjónarkennarar afhentu vitnisburð skólaársins. Búið er að opna fyrir birtingu á hæfnikortum í mentor og við hvetjum foreldra til að rýna í þau.
Lesa meira

Lífverur á skólalóðinni

Nemendur í öðrum bekk hafa unnið með lífverur og náttúruna að undanförnu og fléttað saman við byrjendalæsi, náttúru- og stærðfræði. Krakkarnir lásu bækur úr bókaflokknum Milli himins og Jarðar um köngulær, ánamaðka og humlur. Í kjölfarið var fari í vettvangsferð um skólalóðina og safnað hverskonar lífverum sem voru greindar í víðsjá og stækkunargleri. Þá gerðu nemendur tölfræðigögn og útbjuggu meðal annars súlurit sem tengist stærðfræðinni.
Lesa meira

Útskrift úr grunnskóla - til hamingju

Nemendur tíunda bekkjar kvöddu skólann sinn í dag eftir tíu ára skólagöngu með skólaskírteini í hönd. Hvert og eitt heldur sína leið með eigin markmið og stefnu í lífinu. Skólinn óskar nemendum og fjölskyldum þeirra til hamingju og velfarnaðar á lífsins leið.
Lesa meira

Met í fingraprjóni

Um tveir og hálfur fótboltavöllur, um 80 hæða bygging eða lengd á meðal skemmtiferðaskipi. Með samstilltu átaki, mikill þrautseigju og samvinnu fingraprjónuðu drengir í fjórða bekk um 260 metra langan spotta. Skemmtileg áskorun þar sem hver og einn lagði sitt að mörkum og spottinn lengdist með hverri vikunni.
Lesa meira

Niðurstöður Matsferils aðgengilegar

Niðurstöður úr stöðu- og framvinduprófum Matsferils hafa nú verið birtar og geta foreldrar og forsjáraðilar nálgast þær á Mínum síðum á Ísland.is. Þar er hægt að skoða niðurstöður barna í lesskilningi og stærðfræði og fylgjast með framvindu þeirra í námi.
Lesa meira

Survivor leikarnir 2026

Að vinna saman, fara út fyrir eigin þægindaramma og gera kröfur til sjálfs sín. Í lok skólaárs á þriggja ára fresti blásum við til Survivor leika. Nemendum á unglingastigi er skipt í fjóra hópa eða ættbálka; þurfa að kjósa ættarhöfðingja, skapa jákvæða og góða stemningu, semja hvatningarhróp sem ber hverjum hópi byr í brjóst. Jafnframt þarf að skipuleggja þau verkefni sem bíða hópsins. Þrautir sem reyna á líkama, huga og sál. Þrautirnar krefjast þess að í hverjum ættbálki þurfa nemendur að hlaupa, stökkva, hugsa, elda, koma fram og hafa úthald og útsjónarsemi svo dæmi séu tekin.
Lesa meira

Félagsvist með eldri borgurum

Það er mikilvægt að skólar og nemendur eigi gott samstarf við samfélagið í kringum sig. Með því að taka þátt í samfélagsverkefnum læra nemendur að bera virðingu fyrir öðrum, sýna ábyrgð og efla félagsfærni sína.
Lesa meira

Hvalaskólinn út á flóa

Nemendur fimmta bekkjar hafa undanfarið lært um hvali og lífríki sjávar og tekið þátt í verkefnum Hvalaskólans á fjölbreyttan og skemmtilegan hátt. Nemendur þekkja ýmislegt um hvali fyrir og lærðu að tegundir skiptast í tvo undirflokka og hvað einkennir hvorn hóp. Sömuleiðis fjallað um tegundir kringum Ísland einsog hnúfubak, steypireið, höfrunga, hnísur og háhyrninga.
Lesa meira

Útivera og upplifun

Vor í upphafi sumars, bjartir dagar og gróður að springa út. Nemendur þriðja bekkjar vörðu miklum tíma utandyra síðastliðna viku og var áhersla á útivist og útiveru. Nemendur fóru meðal annars í rannsóknarferð í Stangarbakkafjöru, yndislestur utandyra, búa til fuglafræskúlur upp í Skálamelsskógi og farið í heimsókn í Grobbholt á Skógargerðismel.
Lesa meira

Í sveitasælu

Nemendur fjórða bekkjar fóru í sveitaferð í dag í blíðskaparveðri. Ferðin er fastur liður í starfinu með vísan í aðalnámskrá grunnskóla um að nemendur átti sig á að þeir séu hluti af stærra samfélagi og geti sett sig inn í málefni nærsamfélagsins. Nemendur hafa auk þess fjallað um hringrásir, samspil manns og náttúru og nýtingu auðlinda að undanförnu.
Lesa meira