Vefur Borgarhólsskóla

Lögð er áhersla á að tekið sé vel á móti nýbúum þegar þeir hefja nám og að aðlögun þeirra að skólanum verði jákvæð. Íslenska sem annað tungumál felur í

Móttaka nýbúa – fjölmenning

Lögð er áhersla á að tekið sé vel á móti nýbúum þegar þeir hefja nám og að aðlögun þeirra að skólanum verði jákvæð.

Íslenska sem annað tungumál felur í sér þjálfun í íslensku og þátttöku í íslenskri menningu. Nemendurnir hafa oft ólíkan menningar-, mállegan- og námslegan bakgrunn. Þess vegna er mikilvægt að aðstoða þá að aðlagast nýjum háttum, siðum og nýju skólakerfi.

Tryggja þarf félagslega stöðu nemenda í skólanum. Áhersla er lögð á að nemendur fái sambærilega menntun og aðrir nemendur á meðan þeir eru að tileinka sér íslensku.

Unnið er samkvæmt fjölmenningarstefnu Eyþings og Handbók Eyþings og Reykjavíkurborgar „Móttaka innflytjenda í skóla“.


Svæði

Borgarhólsskóli | Skólagarði 1 | 640 Húsavík | sími: 464 6140 | fax: 464 2133 | kennitala: 671088-9649 | skoli[hjá]borgarholsskoli.is