Markmiðið með næðisverinu er að bjóða nemendum að fara úr bekknum sínum um stund hvort heldur er til að læra eða slaka á. Hægt er að fá aðstoð við verkefnavinnu, lesa, hlusta á slökunartónlist eða eiga létt spjall við starfsmann. Næðisverið er staðsett í Skólaseli og til að byrja með er opið milli kl. 9:30 og 11:15 alla daga. Lokað er í frímínútum. Næðisverið er tilraunaverkefni.