Stuðningsfulltrúar eru til stuðnings fyrir nemendur með sérþarfir. Stuðningfulltrúar vinna samkvæmt einstaklingsnámskrá nemenda og eru í teymi með þroskaþjálfa/sérkennara og umsjónarkennara viðkomandi nemanda. Stuðningsfulltrúar aðstoða nemendur við daglegar athafnir og þátttöku í skólastarfi. Þeir aðlaga verkefni og aðstæður að getu nemandans
og aðstoða hann við að fylgja fyrirmælum um hegðun, samskipti, umgengni og vinnubrögð.