Skólaheilsugæslan er hluti af heilsugæslunni og framhald af ung- og smábarnavernd. Markmið skólaheilsugæslunnar er að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Starfsfólk skólaheilsugæslunnar vinnur í náinni samvinnu við foreldra/forráðamenn, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda með velferð nemenda að leiðarljósi. Þannig stuðlað að því að börn fái að vaxa, þroskast og stunda nám sitt við bestu líkamlegu og andlegu skilyrði. Starfsemi skólaheilsugæslunnar er skv. lögum, reglugerðum og tilmælum sem um hana gilda. Í henni felast skoðanir, bólusetningar og heilbrigðisfræðsla, ásamt ráðgjöf til nemenda, fjölskyldna þeirra og starfsfólks skólans. Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.
Heilbrigðisfræðsla er einn af mikilvægustu þáttum í heilsuvernd grunnskólabarna. Markmið fræðslunnar er að auka þekkingu nemenda á heilsu og þáttum sem hafa áhrif á hana. Heilbriðisfræðslan getur þannig haft jákvæð áhrif á viðhorf og stuðlað að heilbrigðum lífsstíl. 6H- heilsunnar er samstarfsverkefni Miðstöðvar heilsuverndar barna og Lýðheilsustöðvar. Markmið verkefnisins er að útbúa kennslugögn fyrir starfsfólk skólaheilsugæslunnar til að nota við heilbrigðisfræðslu og þannig stuðla að aukinni og samræmdri heilbrigðisfræðslu í grunnskólum landsins. Sú hugmynd sem höfð er að leiðarljósi er að börnin læri í gegnum athafnir og því fylgja oft sérstök verkefni með hverri fræðslu. Einnig er lögð áhersla á það jákvæða frekar en vera með hræðsluáróður, ásamt því að virkja foreldra/forráðamenn með því að senda börnin heim með fréttabréf.
Skólahjúkrunarfræðingur hefur aðsetur í skólanum alla virka daga frá kl: 8(9)-12. Símanúmer skólans er 464-6140.
Heilsufarseftirlit og fræðsla:
| 1. Bekkur: | Hollusta, hreinlæti(tannheilsa og handþvottur), hreyfing/hjálmafræðsla, Hæðar- og þyngdarmæling, sjón- og heyrnarpróf. |
| 2. Bekkur: | Hvíld og hamingja. Hæðar- og þyngdarmæling, sjónpróf. |
| 3. Bekkur: | Hollusta og hreyfing. |
| 4. Bekkur: | Slysavarnir, hreinlæti(tannheilsa), hamingja-Sjálfsmynd, læknisskoðun, hæðar- og þyndarmæling, sjón-og litaskynspróf. |
| 5. Bekkur: | Hreyfing, hollusta, hamingja og samskipti. Hæð- og þyngdarmæling. |
| 6. Bekkur: | Kynþroskinn. |
| 7. Bekkur: | Hugrekki, hreinlæti(tannheilsa). Hæð- og þyndarmæling, sjónpróf, bólusetning(gegn Rauðum hundum, Mislingum og Hettusótt). |
| 8. Bekkur: | Hollusta og hreyfing. Hugrekki |
| 9. Bekkur: | Kynfræðsla, læknisskoðun, hæðar- og þungdarmæling, sjónpróf, bólusetning( gegn Mænusótt, Barnaveiki og Stífkrampa). |
| 10.Bekkur: | Blóðþrýstingmæling og viðtal. Kynning á heilsugæslunni. |
Lyfjaumsjón:
Skólahjúkrunarfræðingur hefur umsjón með lyfjagjöfum skólabarna í samráði við foreldra og metur þörf fyrir verkjalyf í samráði við foreldra. Ef nemandi þarf verkjalyf utan viðverutíma skólahjúkrunarfræðings, skal leitað til umsjónakennara. Börn skulu ekki hafa lyf undir höndum í skólanum nema í undantekningartilfellum og þá í samráði við kennara og skólahjúkrunarfræðing. Slíkar lyfjagjafir geta t.d. verið ofnæmissprautur, insúlingjafir og ofvirknilyf.
Slys og veikindi:
Mikilvægt er að skólaheilsugæslan viti af börnum sem eru með langvinna og/eða alvarlegan sjúkdóm s.s. sykursýki, ofnæmi, flogaveiki og blæðingarsjúkdóma. Ef óhapp eða slys verða á skólatíma sér skólahjúkrunarfræðingur eða starfsfólk skólans um fyrstu hjálp. Ef nemandi þarf að fara á heilsugæslustöð er reynt að ná í foreldra/forráðamenn sem geta þá fylgt barninu, en ef um mjög alvarleg veikindi eða slys er um að ræða og barn þarf að fara strax á heilsugæslustöð, þá fylgir starfsmaður skólans barninu, ef þess þarf.
Mjög mikilvægt er því að skólinn hafi öll símanúmer þar sem hægt er að ná í foreldra/forráðamenn barnsins.
Tannvernd:
Skólaheilsugæslan býður öllum nemendum skólans upp á flúorskol ½ mánaðarlega og þurfa foreldrar að láta vita ef barn á ekki að fá flúor.
Lús:
Ef upp kemur lús í skólanum er send tilkynning um það heim ásamt leiðbeiningum um meðferð. Kembing og meðferð er á ábyrgð foreldra og mikilvægt að foreldrar skoði hár barna sinna reglulega. Einnig er nauðsynlegt að láta skólahjúkrunarfræðing eða kennara vita ef barn fær lús.
Svefn barna:
Til að börnum líði vel og séu hæf til að takast á við verkefni dagsins þurfa þau nægan svefn, en svefnþörf skólabarna er 8-10 klst. á sólahring.
Líðan barna:
Til að njóta sín í námi verður barninu að líða vel í skólanum. Skólaheilsugæslan hvetur foreldra til að vera vakandi yfir líðan barna sinna og spyrja þau reglulega um líðan sína, einnig hafa það hugfast að hrós og hvatning styrkja jákvæða hegðun og auka vellíðan. Foreldrar geta ávallt leitað ráðgjafar hjá skólaheilsugæslunni varðandi andlegt, líkamlegt og félagslegt heilbrigði barnsins.
Með kveðja og ósk um gott samstarf
Brynhildur Gísladóttir skólahjúkrunarfræðingur Borgarhólsskóla