Markmið:
Að fræða nýjan starfsmann um réttindi og skyldur, kynna honum vinnustaðinn og sérkenni hans, þannig að hann finni sig heima og velkominn.
Rökstuðningur:
Greinargóðar upplýsingar um það sem í vændum er og hlýlegt viðmót er líklegt til að leggja grunn að starfsánægju og þar með góðu vinnuframlagi starfsmannsins.
Leiðir:
- Skólastjóri tekur á móti nýjum starfsmönnum og kynnir þeim skólann.
- Nýir kennarar og leiðbeinendur njóta aðstoðar leiðsagnarkennara sem kynna þeim gögn varðandi starfið og leiðbeina á fyrsta starfsári.
- Húsvörður og flokkstjóri skólaliða leiðbeina nýjum starfsmönnum og eru þeim innan handar um réttindi og skyldur.