    <language>is</language>
Borgarhólsskóli
Lætur af störfum eftir fjóra áratugi í kennslu
Einn reynslumesti kennari skólans hefur látið af störfum eftir tæpa fjóra áratugi í starfi við skólann. Hafnfirðingurinn Guðrún Kristinsdóttir útskrifaðist frá Íþróttakennaraskólanum á Laugarvatni. Hún hóf kennsluferil sinn í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði en fluttist til Húsavíkur árið 1986 og hóf þá störf við Barnaskóla Húsavíkur og síðar Borgarhólsskóla.]]></description>
Endurmenntun og rýni til gagns
Starfsfólk skólans varði deginum í endurmenntun þar sem farið var yfir niðurstöður innra mats og Skólapúlsins auk þess sem horft var til styrkleika skólastarfsins og áherslna til framtíðar. Í hópavinnu ræddi starfsfólk meðal annars hvað hefði gengið vel á skólaárinu, hvaða vinnubrögð hefðu reynst árangursrík og hvað nemendur og foreldrar segðu jákvætt um skólann. Einnig var rætt um starfsandann, áhrif skólans á nærsamfélagið og hvað mikilvægt væri að halda áfram að gera.]]></description>
Skólaárinu lokið hjá nemendum
Skólaárinu 2025-2026 er lokið hjá nemendum. Nemendur fyrsta til og með níunda bekkjar hittu kennarana sína í dag í hverskonar uppbroti, komu saman á söngsal og endað í pitsahlaðborði. Þórgunnur Reykjalín skólastjóri ræddi þar við nemendur á sal og hvatti krakkana til dáða, það eru alltaf tækifæri til bætingar í öllu. Að því loknu voru sungin nokkur lög. Umsjónarkennarar afhentu vitnisburð skólaársins. Búið er að opna fyrir birtingu á hæfnikortum í mentor og við hvetjum foreldra til að rýna í þau.]]></description>
Lífverur á skólalóðinni
Nemendur í öðrum bekk hafa unnið með lífverur og náttúruna að undanförnu og fléttað saman við byrjendalæsi, náttúru- og stærðfræði. Krakkarnir lásu bækur úr bókaflokknum Milli himins og Jarðar um köngulær, ánamaðka og humlur. Í kjölfarið var fari í vettvangsferð um skólalóðina og safnað hverskonar lífverum sem voru greindar í víðsjá og stækkunargleri. Þá gerðu nemendur tölfræðigögn og útbjuggu meðal annars súlurit sem tengist stærðfræðinni.]]></description>
Útskrift úr grunnskóla - til hamingju
Nemendur tíunda bekkjar kvöddu skólann sinn í dag eftir tíu ára skólagöngu með skólaskírteini í hönd. Hvert og eitt heldur sína leið með eigin markmið og stefnu í lífinu. Skólinn óskar nemendum og fjölskyldum þeirra til hamingju og velfarnaðar á lífsins leið.]]></description>
Met í fingraprjóni
Um tveir og hálfur fótboltavöllur, um 80 hæða bygging eða lengd á meðal skemmtiferðaskipi. Með samstilltu átaki, mikill þrautseigju og samvinnu fingraprjónuðu drengir í fjórða bekk um 260 metra langan spotta. Skemmtileg áskorun þar sem hver og einn lagði sitt að mörkum og spottinn lengdist með hverri vikunni.]]></description>
Niðurstöður Matsferils aðgengilegar
Niðurstöður úr stöðu- og framvinduprófum Matsferils hafa nú verið birtar og geta foreldrar og forsjáraðilar nálgast þær á Mínum síðum á Ísland.is. Þar er hægt að skoða niðurstöður barna í lesskilningi og stærðfræði og fylgjast með framvindu þeirra í námi.]]></description>
Survivor leikarnir 2026
Að vinna saman, fara út fyrir eigin þægindaramma og gera kröfur til sjálfs sín. Í lok skólaárs á þriggja ára fresti blásum við til Survivor leika. Nemendum á unglingastigi er skipt í fjóra hópa eða ættbálka; þurfa að kjósa ættarhöfðingja, skapa jákvæða og góða stemningu, semja hvatningarhróp sem ber hverjum hópi byr í brjóst. Jafnframt þarf að skipuleggja þau verkefni sem bíða hópsins. Þrautir sem reyna á líkama, huga og sál. Þrautirnar krefjast þess að í hverjum ættbálki þurfa nemendur að hlaupa, stökkva, hugsa, elda, koma fram og hafa úthald og útsjónarsemi svo dæmi séu tekin.]]></description>
Félagsvist með eldri borgurum
Það er mikilvægt að skólar og nemendur eigi gott samstarf við samfélagið í kringum sig. Með því að taka þátt í samfélagsverkefnum læra nemendur að bera virðingu fyrir öðrum, sýna ábyrgð og efla félagsfærni sína.]]></description>
Hvalaskólinn út á flóa
Nemendur fimmta bekkjar hafa undanfarið lært um hvali og lífríki sjávar og tekið þátt í verkefnum Hvalaskólans á fjölbreyttan og skemmtilegan hátt. Nemendur þekkja ýmislegt um hvali fyrir og lærðu að tegundir skiptast í tvo undirflokka og hvað einkennir hvorn hóp. Sömuleiðis fjallað um tegundir kringum Ísland einsog hnúfubak, steypireið, höfrunga, hnísur og háhyrninga.]]></description>
Útivera og upplifun
Vor í upphafi sumars, bjartir dagar og gróður að springa út. Nemendur þriðja bekkjar vörðu miklum tíma utandyra síðastliðna viku og var áhersla á útivist og útiveru. Nemendur fóru meðal annars í rannsóknarferð í Stangarbakkafjöru, yndislestur utandyra, búa til fuglafræskúlur upp í Skálamelsskógi og farið í heimsókn í Grobbholt á Skógargerðismel.]]></description>
Í sveitasælu
Nemendur fjórða bekkjar fóru í sveitaferð í dag í blíðskaparveðri. Ferðin er fastur liður í starfinu með vísan í aðalnámskrá grunnskóla um að nemendur átti sig á að þeir séu hluti af stærra samfélagi og geti sett sig inn í málefni nærsamfélagsins. Nemendur hafa auk þess fjallað um hringrásir, samspil manns og náttúru og nýtingu auðlinda að undanförnu.]]></description>
Vorboðar í Grobbholti
Vorboðar birtast einn af öðrum með hækkandi sól. Nemendur sjöunda bekkjar fengu sér göngu upp á Skógargerðismelinn og litu við hjá bændunum í Grobbholti. Þar mátti finna nýborin lömbin, kindina Eldingu sem þykir einkar gæf og hrútinn Mola sem lék listir sínar.]]></description>
Borgarhólsskóli sigraði Fiðring
Fiðringur á Norðurlandi er hæfileikakeppni grunnskólanna að fyrirmynd Skrekks í Reykjavík og Skjálftans á Suðurlandi. Þetta er í fimmta skipti sem Fiðringur fer fram og í ár tóku níu skólar þátt af Norðurlandi. Keppnin fór fram í Hofi á Akureyri og sigraði keppnina í ár.]]></description>
STEM námsferð til Bodø
Hluti starfsfólks Borgarhólsskóla fór ásamt starfsfólki frá Grænuvöllum í náms- og tækniferð til Noregs með STEM Húsavík. Hópurinn heimsótti First Scandinavian en það eru samtök sem voru stofnuð síðastliðin aldamót til að veita börnum og ungmennum jákvæða námsreynslu í vísindum, stærðfræði og tækni og efla áhuga á raunvísindum, stærðfræði og tækni.]]></description>
Heimsókn í Freyju
Landhelgisgæslan fangar aldarafmæli um þessar mundir. Gæslan gerir meðal annars út tvö varðskip, þrjár þyrlur og eina flugvél. Varðskipin Þór og Freyja sigla núna hringinn um landið til að heimsækja hafnir að þessu tilefni. Freyja kom til Húsavíkurhafnar fyrir helgi og bauð nemendum í heimsókn auk þess sem gestum og gangandi var boðið að skoða skipið um helgina.]]></description>
Enn skák og mát
Skák er bæði spennandi og skemmtileg. Hún er hugræn áskorun sem þjálfar hugann í að hugsa fyrirfram, áætla og leysa verkefni. Hún stuðlar að þroska sjálfstjórnar og sálræns þols. Skákin hefur félagsleg gildi þar sem keppt er við andstæðinginn með kunnáttu og reynslu, allt frá byrjanda til meistara.]]></description>
Tónlistin hefur áhrif
Eitt lag getur haft mikil áhrif á tilfinningar, róað eða lyft fólki upp. Tónlistin tengist minningum og augnablikum og hreinlega bætir hversdaginn. Segja má að tónlistin sé litur tilfinninganna og málar tilveruna eins og við finnum hana.]]></description>
Fleiri Lítil skref
Sprotasjóður leik- grunn- og framhaldsskóla hefur úthlutað 64.370.000 kr. til tuttugu skólaþróunarverkefna fyrir skólaárið 2026–2027. Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik-, grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga. Umsýsla sjóðsins er hjá Rannís. Áherslusvið sjóðsins árið 2026 voru grunnþættir menntunar; lýðræði og mannréttindi og nýjar kennsluaðferðir og námsmat með sjálfstæði og virkni nemenda að markmiði.]]></description>
Skóladagatal næsta skólaárs 2026-2027
Skóladagatal skólans fyrir skólaárið 2026 og 2027 liggur fyrir og öllum aðgengilegt. Við hvetjum fólk til að kynna sér dagatalið. Skólastarfs hefst 24. ágúst 2026 hjá nemendum, haustfrí um miðjan október, litlu jól 18. desember, vetrarfrí í febrúar 2027 og lýkur skólahaldi 8. júní 2027.]]></description>