Endurmenntunaráætlun

Markmið: Allir starfsmenn sæki símenntun samhliða starfi til hagsbóta fyrir skólastarfið. Rökstuðningur: Símenntun starfsmanna er ein af forsendum

Endurmenntunaráætlun starfsfólks Borgarhólsskóla

Markmið:

Allir starfsmenn sæki símenntun samhliða starfi til hagsbóta fyrir skólastarfið.

Rökstuðningur:

Símenntun starfsmanna er ein af forsendum framfara, þess vegna þurfa allir að taka þátt í símenntun sem miðar að því að bæta árangur skólastarfsins.  Leitast er eftir því að skilgreindar þarfir skólans og sérstakar óskir starfsmanna um endurmenntun fari saman.

Leiðir:

  • Árlega er endurmenntunaráherslum skólans skipað í forgangsröð, í samráði við starfsmenn.
  • Boðið er upp á námsskeið og fræðslufundi.
  • Ætlast er til að starfsmenn sem sækja endurmenntun á vegum skólans miðli fróðleiknum til skólasamfélagsins og skapi þannig skilyrði til að festa jákvæðar breytingar í sessi.

Viðmið:

  • Að skólinn hafi á að skipa hæfu og vel menntuðu starfsfólki sem er tilbúið að sækja sér aukna þekkingu og sýni það í verki.



Svæði

Borgarhólsskóli | Skólagarði 1 | 640 Húsavík | sími: 464 6140 | fax: 464 2133 | kennitala: 671088-9649 | skoli[hjá]borgarholsskoli.is