Jafnrétti

Markmið: Jafnrétti til náms er grundvallar mannréttindi óháð kyni, kynþætti, trúarbrögðum, fötlun eða lífsskoðunum.  Rökstuðningur: Mikilvægt er að

Jafnrétti

Markmið:

Jafnrétti til náms er grundvallar mannréttindi óháð kyni, kynþætti, trúarbrögðum, fötlun eða lífsskoðunum. 

Rökstuðningur:

Mikilvægt er að skólinn sýni nærgætni og skilning þegar fjallað er um viðkvæm málefni.
Fræðsla um jafnrétti er sjálfsagt umfjöllunarefni í sem flestum námsgreinum s.s. samfélagsfræði, líffræði og lífsleikni. Umfjöllun um jafnrétti eykur líkur á jákvæðum viðhorfum gagnvart fjölbreytileika mannlífsins. 

Viðmið:

  • Á öllum skólastigum skal veita fræðslu um jafnréttismál.
  • Kennslutæki og kennslubækur skulu vera þannig úr garði gerðar að kynjum sé ekki mismunað. Kennsluaðferðir mega ekki mismuna nemendum eftir kynferði, búsetu, uppruna, litarhætti, fötlun, trúarbrögðum eða félagslegri stöðu.
  • Haft sé í huga að stúlkur og drengir geti haft ólík áhugamál og lífsreynslu.
  • Kenndar leiðir til að koma auga á og vinna gegn hvers konar  misrétti.
  • Við sérstakar aðstæður er skólanum heimilt að veita undanþágur frá ákveðnum þáttum skyldunáms. Skólinn og heimilið skulu sjá til þess í sameiningu að þessir nemendur fái jafnvæg tækifæri til menntunar og þroska.

 


Svæði

Borgarhólsskóli | Skólagarði 1 | 640 Húsavík | sími: 464 6140 | fax: 464 2133 | kennitala: 671088-9649 | skoli[hjá]borgarholsskoli.is