Markmið
Stefna skólans er að öllum nemendum líði vel, skólinn sé öruggur staður þar sem unnið er að vellíðan nemenda í samvinnu/samráði við foreldra og aðra aðila.
Rökstuðningur
Til að árangur skólastarfsins verði sem bestur er nauðsynlegt að nemendum líði vel andlega, líkamlega og félagslega. Þessir þættir eru nátengdir og því mikilvægt að þeim sé öllum gert jafn hátt undir höfði. Það er ríkur þáttur í heilbrigðu uppeldi grunnskóla að stuðla að sem bestri líðan og öryggi nemenda.
Viðmið
- Stuðla að góðum bekkjaranda t.d. með bekkjarkvöldum, vinahópum og ýmsum verkefnum tengdum vináttu.
- Skapa nemendum gott og öruggt vinnuumhverfi með skýrum reglum þar sem ríkir gagnkvæm virðing, jákvætt viðhorf og að hver og einn fái nám við sitt hæfi.
- Með öflugu tengslaneti innan skólans þar sem nemendur hafa gott aðgengi að starfsmönnum, samvinna/samráð milli kennara sé virkt og gott samband milli heimilis og skóla.
- Styrkja félagsleg tengsl nemenda með félagsfærnihópum, Sal, skólaferðalögum og fleiru.
- Unnið samkvæmt eineltisáætlun skólans.
Einelti/forvarnir/viðbrögð
Borgarhólsskóli vinnur samkvæmt áætlun sem byggir á kerfi Dan Olweusar og hefur skilað góðum árangri í baráttunni gegn einelti. Hún byggir ekki einungis á ákveðnum viðbrögðum þegar einelti kemur upp heldur er einnig um fyrirbyggjandi aðgerðir að ræða.
Skilgreining á einelti
Einelti er endurtekið áreiti eða ofbeldi, líkamlegt eða andlegt sem veldur þolandanum vanlíðan. Líkamlegt einelti getur verið barsmíðar, spörk, hrindingar eða aðrar meiðingar en andlegt einelti stríðni, útilokun, hótanir, höfnun o.fl.
Hugsanlega er um einelti að ræða ef nemandinn
- Er hræddur við að ganga einn í skólann eða heim.
- Vill ekki fara í skólann.
- Kvartar undan vanlíðan á morgnana.
- Hættir að sinna náminu, einkunnir lækka.
- Fer að koma heim í rifnum fötum eða með skemmdar námsbækur.
- Byrjar að stama.
- Missir sjálfstraustið.
- Leikur sér ekki við önnur börn.
- Neitar að segja frá hvað amar að.
- Kemur heim með marbletti og skrámur sem hann getur ekki útskýrt.
- Verður árásargjarn og erfiður viðureignar.
- Kemur heim í öllum hléum í skólanum.
- Vill ekki taka þátt í félagsstörfum.
Hlutverk starfsmanna skólans
Að vera vakandi fyrir velferð nemenda, vera þeim fyrirmynd í daglegri umgengni og beita íhlutun í samræmi við áætlanir Olweusar þegar þörf er á. Mikilvægt er að umsjónarkennarinn sé strax upplýstur um það sem aflaga fer og það sé gert skriflega.
Hlutverk nemenda skólans
Að koma vitneskju um einelti til foreldra, umsjónarkennara eða annarra starfsmanna.
Hlutverk foreldra
Að vera vakandi fyrir líðan og velferð barnsins og kalla eftir aðstoð í skólanum þegar ástæða er til.
Forvarnir
Markmið
Að koma í veg fyrir einelti í Borgarhólsskóla þannig að skólinn verði öruggur staður þar sem nemendum getur liðið vel og þeir geta ótruflaðir einbeitt sér að námi og leik.
Rökstuðningur
Til að nemendum líði vel í skólanum er nauðsynlegt að þeir beri virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum. Nemendur bera ábyrgð á framkomu sinni og skulu leitast við að vera góðir félagar. Viðmót starfsfólks þarf að vera þannig að nemendur viti að þeir geti treyst því og að skólinn bregðist skjótt við vandamálum.
Viðmið
- Stuðla að góðum bekkjaranda.
- Bekkjarfundir á stundskrá allra bekkja
- Reglulega unnið með eineltishring Olweusar.
- Unnið með lífsleikni verkefni sem tengjast einelti á öllum skólastigum.
- Umhverfið gert sem öruggast með samvinnu og eftirliti allra innan skólans.
- Móta jákvætt andrúmsloft innan skólans.
- Fundir haldnir reglulega til þess að forvörnum gegn einelti sé fylgt eftir af öryggi og festu.
Viðbrögð
Markmið
Að takast strax á við eineltið og koma í veg fyrir að það haldi áfram svo að öllum nemendum líði sem best í skólanum.
Rökstuðningur
Ofbeldi er hegðun sem aldrei er hægt að líða. Einelti ber að taka mjög alvarlega og er ekki liðið í Borgarhólsskóla. Nemendur eiga rétt á að stunda nám sitt við öruggar aðstæður og líða vel.
Viðmið
- Þegar starfsmaður fær grun um að nemandi verði fyrir einelti skal hann undir eins skrá tilvikið og koma upplýsingunum til umsjónarkennara nemandans.
- Umsjónarkennari athugar málið og fylgir því eftir í samráði við skólastjórnendur ef um einelti er að ræða. Það gerir kennarinn með því að athuga hvort hliðstæð tilvik hafi komið upp oftar í kringum þennan tiltekna nemanda og þá hvernig og hvar og af völdum hverra.
- Ef um endurtekið atferli er að ræða er málum fylgt eftir með viðtölum við gerendur, þolendur og foreldra.
- Þátttakendur í eineltinu eru vaktaðir á áhættutímum og gripið til annarra ráða í samræmi við áætlun Olweusar ef vöktun og viðtöl duga ekki til.
- Fylgst er með þeim sem fyrir eineltinu verða um tíma og þeir styrktir með bekkjarvinnu, stuðningi og viðtölum.
- Ef ekki tekst að koma í veg fyrir eineltið með ofangreindum aðgerðum vísar umsjónarkennari málinu til nemendaverndarráðs sem sér þá um að kalla til utanaðkomandi aðstoð sérfræðinga á vegum Skólaþjónustunnar.
Sorg og sorgarviðbrögð
Markmið:
Hlutverk áfallaráðs er að móta vinnureglur og aðstoða starfsfólk skólans um hvernig bregðast eigi við ýmiss konar áföllum sem starfsfólk eða nemendur og aðstandendur þeirra kunna að verða fyrir eða tengjast með öðrum hætti og kalla fram sorgarviðbrögð.
Áfallaráð skólans starfar af fyllsta trúnaði og gætir sérstaklega allra persónulegra upplýsinga.
Rökstuðningur:
Áfallaráð kemur saman og vinnur með skólastjórnendum að því að skipuleggja viðbrögð þegar þörf krefur. Skólastjórnendur bera ábyrgð á að kalla áfallaráð saman.
Innan Borgarhólsskóla mynda eftirtaldir fagaðilar áfallaráð:
- Skólastjóri
- Aðstoðarskólastjóri
- Deildarstjóri
- Námsráðgjafi
- Skólahjúkrunarfræðingur
Skólasálfræðingur og sóknarprestur munu vera áfallaráði innan handar og eru kallaðir til eftir því sem við á.
Viðmið:
Áfallaráð skal sjá til þess að allt starfsfólk skólans fái kynningu á því hvernig bregðast skuli við áföllum. Mikilvægt er að skólinn fái upplýsingar um áföll sem starfsmenn og nemendur verða fyrir eða gerast innan fjölskyldna þeirra. Með því getur skólinn brugðist við og veitt þeim sem í hlut eiga, viðeigandi stuðning.
Áfall er m.a. skilgreint sem:
- Alvarlegt slys
- Alvarlegur sjúkdómur
- Missi/andlát einhvers nákomins
- Kynferðislegt ofbeldi
- Skilnaður foreldra
Tekið er tillit til aðstæðna hverju sinni þegar viðbrögð eru ákveðin.