Námið

Kennsluaðferðir Markmið: Kennsluaðferðir skulu vera fjölbreyttar og með þeim skal leitast við að koma til móts við mismunandi námsgetu, námsþarfir,

Námið

Kennsluaðferðir

Markmið:

Kennsluaðferðir skulu vera fjölbreyttar og með þeim skal leitast við að koma til móts við mismunandi námsgetu, námsþarfir, námsþætti og áhugasvið nemenda og gera þannig námið lifandi og áhugavert.

Rökstuðningur:

Kennsluaðferð er það skipulag sem kennari hefur á kennslu sinni og samskiptum við nemendur, þannig að nemendur nái þeim markmiðum sem sett eru.  Þegar kennsluaðferðir eru fjölbreyttar koma kennarar betur til móts við þarfir hvers og eins.

Viðmið:

  • Að nota fjölbreyttar kennsluaðferðir
  • Að fræða nemendur
  • Að virkja nemendur til sjálfstæðra vinnubragða
  • Að þjálfa vinnubrögð
  •  Að þjálfa tjáningu
  • Að þroska rökhugsun
  • Að þjálfa samvinnu
  • Að auka víðsýni
  • Að efla sköpun

Námskröfur og námsmarkmið 

Markmið:

Með því að setja ákveðin námsmarkmið er stefnt að markvissara og árangursríkara skólastarfi.  Nemendur geta farið mismunandi leiðir að því að ná markmiðunum og skulu þau vera sniðin að þörfum þeirra.  Skólinn gerir kröfur um ástundun og vönduð vinnubrögð.

Rökstuðningur:

Markmið  er leiðarvísir í öllu skólastarfi og forsenda áætlanagerðar um nám og kennslu.

Markmiðin þurfa að vera ljós bæði nemendum og foreldrum.   Þannig má auðvelda sanngjarnt mat á heildarárangri nemenda í lok hvers námstímabils.

Viðmið:

  • Að allir nemendur fái viðfangsefni við hæfi.
  • Að kennarar hagi störfum  sínum í sem fyllstu samræmi við þarfir nemenda og stuðli að alhliða þroska hvers og eins.
  • Að stuðla að gagnrýnni og sjálfstæðri hugsun hjá nemendum.
  • Að efla sjálfstraust og heilbrigðan metnað nemenda. 

Námsmat

Markmið:

Að  nemendur nái settu marki út frá námsmarkmiðum í kennsluáætlun sem byggir á aðal- og skólanámskrá. Einnig að veita upplýsingar um stöðu nemenda sem hvetur þá til að ná árangri og taka framförum í skólanum, ásamt því að taka ábyrgð á eigin námi.

Rökstuðningur:

Með fjölbreyttu námsmati þar sem nemendur eru virkir þátttakendur má stuðla að því að nemendur taki aukna ábyrgð á námi sínu þar sem þeirra þáttur skiptir máli. Með því að hafa skýrt hvað á að meta vita nemendur til hvers er ætlast af þeim. Námsmat á einnig að veita foreldrum og kennurum upplýsingar um námsgengi nemandans til frekari skipulagningu náms.Vegna þess leggur Borgarhólsskóli áherslu á leiðsagnarmat og virka þátttöku foreldra og nemenda í námsmatinu hverju sinni.

Viðmið:

Með fjölbreyttu námsmati er átt við:

  • Sýnismöppur
  • Símat
  • Sjálfsmat
  • Foreldramat
  • Próf
  • Verkefni
  • Kannanir
  • Skriflegt mat
  • Munnlegt mat
  • Verklegt mat
  • Jafningjamat

Svæði

Borgarhólsskóli | Skólagarði 1 | 640 Húsavík | sími: 464 6140 | fax: 464 2133 | kennitala: 671088-9649 | skoli[hjá]borgarholsskoli.is