Stuðningsfulltrúar

Stuðningsfulltrúar eru til stuðnings fyrir nemendur með sérþarfir.  Stuðningfulltrúar vinna samkvæmt einstaklingsnámskrá nemenda og eru í teymi með þjálfa/sérkennara og umsjónarkennara viðkomandi nemanda.   Stuðningsfulltrúar aðstoða nemendur við daglegar athafnir og þátttöku í skólastarfi.  Þeir aðlaga verkefni og aðstæður að getu nemandans og aðstoða hann við að fylgja fyrirmælum um hegðun, samskipti, umgengni og vinnubrögð.