Frístund - Borgarhólsskóla

Frístund - Borgarhólsskóla er staðsett á efri hæð í Íþróttahöllinni á Húsavík. Frístundarvistun er í boði fyrir börn í 1.- 4. bekk þar sem hlutverkið er að bjóða upp á fjölbreytt tómstundastarf sem hentar öllum.

  • Frístund er opin frá kl. 13:00 eða frá því að skóla lýkur og til kl. 16:00.
  • Í dagsklok er ætlast til að foreldrar/forráðamaður sækji barn í frístund eigi seinna en kl. 16.15.
  • Nemendur fyrsta, annars og þriðja bekkjar fá fylgd yfir í Frístund en nemendur fjórða bekkjar koma sér sjálfir í vistunina.
  • Starfsfólk hjálpar einnig til við að minna börnin á íþrótta og tómstundastarf sem er stundað á vistunartíma.

 

Senda póst í Frístund - tun@nordurthing.is

Hringja í Frístund - sími 663 5290

 

Starfsfólk Frístund - Borgarhólsskóli:

Kristinn Lúðvíksson, forstöðumaður. kristinn@nordurthing.is. Sími 663-5290

Berglind Ósk Ingólfsdóttir

Daníel Máni Einarsson

Friðrik Rúnar Hólm

Kristján Leó Arnbjörsson, í leyfi

Kristín Elísa Sigurðsdóttir

Unnur Erlingsdóttir

 

Skráning

Sótt er rafrænt um dvalarsamning fyrir nemanda í frístund inni á heimasíðu Norðurþings (í vinnslu). Sjá hér á vefsvæði Norðurþings. Boðið er upp á vistun frá einum degi upp að fimm dögum í viku og er síðdegishressing innifalin. Dvalarsamningurinn gildir út skólaárið en hægt er að breyta fyrirkomulagi vistunar á milli mánaða. Ef foreldri/forráðamaður óskar eftir að gera breytingu á dvalartíma skal láta vita fyrir 20. hvers mánaðar, skriflega eða rafrænt til forstöðumanns frístundar og miðast breyting við 1. næsta mánaðar. Gjaldskrá, sjá hér

 

Afþreying

Starfið felst m.a. í föndri, hópleikjum, frjálsum leik, hópefli, fræðslu og vettfangsferðum svo fátt eitt sé nefnt.

Börnin vinna með málningu í einstaka tilfellum og því má reikna með því að óhöpp geti orðið. Tún áskilur sér engan rétt á því að bæta fatnað barnanna, við gerum þó okkar allra besta til að koma í veg fyrir slík slys. Gott getur verið að mæta með föt til skiptanna. Skapaðar eru aðstæður þar sem hvert barn fær tækifæri til að stykjast í samskiptum við jafnaldra og að sama skapi að læra að standa á eigin fótum. Leiðarljós starfsins er þó alltaf að barnið fái tækifæri til að velja verkefni og aðstæður sem henta að hverju sinni með það að markmiði að öllum líði vel.

 

Markmið

Lögð er áhersla á að búa til skapandi og öruggt umhverfi fyrir börnin þar sem hver og einn fær að njóta sín og þroskast. Í frístund gefst börnum kostur á að fá útrás fyrir hreyfi,- leikja og sköpunarþörf. Þó svo að frístund byggi fyrst og fremst á frjálsum leik er unnið eftir skipulagðri starfsemi, þar sem lögð er áhersla á uppeldislegt gildi.

  • Að barninu líði vel í frístund.
  • Að barnið finni fyrir öryggi.
  • Að barnið læri að deila og koma vel fram við aðra.
  • Að barnið fái tækifæri til að þroskast líkamlega, andlega og félagslega.
  • Að góð samskipti og samvinna sé milli skóla, heimila og frístundar

 

Algengar spurningar

Barnið mitt er á íþróttaæfingu á frístundartíma, þarf ég að sækja það og má það koma aftur í frístund eftir æfingu?

Foreldrar þurfa ekki að sækja, starfsfólk frístundar passar upp á að senda börnin tímalega á allar æfingar sem eru á frístundartíma. Þau fá þó ekki fylgd á æfingar og eru svo á sinni eigin ábyrgð/foreldranna eftir það. Börnunum er velkomið að koma aftur í frístund eftir æfingar en þeim verður að vera treyst í það að skila sér aftur sjálf.

Hvað með forföll?

Foreldrar láta vita af forföllum í gegnum síma frístundar 663-5290 eða á netfangið tun@nordurthing.is. Eins þarf að láta vita á sama hátt ef annar en foreldri/forráðamaður sækir barnið.

Er einhver sérstakur klæðnaður?

Ætlast er til að börn komi ávallt klædd eftir veðri.

Hvar er frístund?

Frístund er staðsett á efri hæð í Íþróttahöll Húsavíkur (Grænatorg).

Hvernig greiðir maður?

Foreldrar fá sendan reikning heim eða í gegnum netbanka.

Get ég breytt vistun?

Foreldri þarf að láta vita skrifalega á netfangið tun@nordurthing.is fyrir 20. hvers mánaðar og tekur breytingin gildi 1. næsta mánaðar.
ATH: Umsókn um vistun gildir allan veturinn eða þar til vistun er sagt upp, þ.e. fyrir 20. hvers mánaðar. Ekki þarf að sækja um í hverjum mánuði.