Að sjást

Það borgar sig að sjást í umferðinni.
Það borgar sig að sjást í umferðinni.
Í myrkri sjást gangandi vegfarendur illa þrátt fyrir götulýsingu og ökuljós bifreiða og er notkun endurskinsmerkja þess vegna nauðsynleg. Endurskinsmerkin eiga að vera sýnileg og er best að hafa þau, fremst á ermum, hangandi meðfram hliðum eða á skóm eða neðarlega á buxnaskálmum. Þá virka endurskinsmerkin eins og blikkljós þegar ljós skín á þau.
Því fyrr og betur sem ökumenn greina gangandi vegfarendur þeim mun meira er öryggi þeirra sem gangandi eru. Það er staðreynd að ökumenn sjá gangandi vegfarendur með endurskinsmerki fimm sinnum fyrr en ella og því getur notkun endurskinsmerkja skilið milli lífs og dauða.
Skólahald hefst kl. 8:15 í Borgarhólsskóla. Sólarupprás á Húsavík í morgun, þriðjudag var klukkan 9:55 og fjórum mínútum síðar á morgun miðvikudag og þannig seinkar upprás sólar dag frá degi þangað til sól hækkar á lofti 21. desember.
Við viljum því hvetja nemendur til að ganga með endurskinsmerki og þá sem hjóla og foreldra sömuleiðis að tryggja öryggi barna sinna þegar gengið er í skólann.
 
Þeir sem bera endurskinsmerki sjást mun fyrr í umferðinni eins og sjá má í þessu myndbandi frá Samgöngustofu.

Athugasemdir