Alþjóðlegi móðurmálsdagurinn

Síðastliðinn sunnudag fagnaði UNESCO, menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna alþjóðalega tungumáladeginum. Til­gangurinn er að stuðla að fjölbreytni í tungumálum, menningu og fjöltyngi. Í tilkynningu frá Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi segir að aukin vitundarvakning hafi orðið um allan heim um hve mikilvæg tungumál séu til að þróa sjálfbær samfélög. Menningarlegur fjölbreytileiki sé nauðsynlegur sem og samstarf til að allir hafi aðgang að góðri menntun.

Af þessu tilefni var blásið til tungumálaleitar til að kort­leggja öll þau tungumál sem töluð eru af börnum og unglingum á leik- og grunnskólastigi á Íslandi með það að markmiði að „stuðla að já­kvæðri um­ræðu um tungu­mál og fjöltyngi,“ að því er segir í tilkynningu frá vinnuhópi Móðurmáls-samtaka um tvítyngi sem sá um verkefnið.

 

Með þessu er vonast til þess að skapa námsmenningu þar sem börn og unglingar upplifa stolt yfir auði tungumálsins. Mikilvægt sé að þau átti sig á hve tungumálið er mikilvægt fyrir sjálfsmynd og tilfinningalíf hvers og eins. Meðal niðurstöðu vinnuhópsins er að 109 tungumál eru töluð í íslenskum skólum. Í ár kom í ljós 14 ný tungumál sem ekki mátti finna á síðasta slíka korti sem unnið var 2014. Í Borgarhólsskóla og Tónlistarskóla Húsavíkur eru töluð sextán tungumál með einum eða öðrum hætti.


Athugasemdir