- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Farsæld barna
Að lesa og viðhalda lestri er grunnurinn að allri okkar nálgun á þekkingu og í samfélaginu almennt. Að skilja umhverfi sitt og hagnýta allt sem tilveran hefur upp á að bjóða. Það er mikilvægt að börn og ungmenni lesi heima, ekki bara til að þjálfa eigin lesfimi heldur líka til að byggja upp orðaforða þannig að þau öðlist góða tilfinningu fyrir rituðu máli.
Á síðastliðnu skólaári fór skólinn tvívegis í lestrarátak meðal allra nemenda sem gáfu góða raun. Aukin áhersla á heimalestur meðal unglinga hefur skilað meiri framför hjá þeim varðandi lesfimi. Á yngri stigum er í auknum mæli unnið með einstaklignsmiðun í heimalestri. Framhald verður á þessi vinnu á næsta skólaári. Það eru almennt tækifæri til bætingar í að sinna heimalestri.
Skólinn er í þróunarverkefni sem felst í að vinna með smáforrit sem heitir Læsir. Í könnun varðandi notkun á forritinu segjast um sjö af hverjum tíu vera ánægð með forritið og vinnuna í kringum það. Fjórir af hverjum tíu myndu kjósa sérstaka lestrarbók þar sem kvittað er fyrir lesturinn. Læsir gefur góða yfirsýn yfir lestur og lestrarmagn. Það er óhætt að segja að við teljum, miðað við skráningu að fleiri lesi meira heima. Öll tölfræði sem má sjá í forritun er afar gagnleg fyrir áframhaldandi vinnu við innleiðingu á betri lestrarmenningu. Þá er alveg ljóst að fyrirmyndir eru mikilvægar í lestri og ábyrgð fullorðinna augljós.
Skólinn er í sérstöku þróunarverkefni sem kallast Lítil skref á leið til læsis í fyrsta bekk. Verkefnið gengur reglulega vel og ánægjulegt að segja frá því að 90,6% nemenda fyrsta bekkjar náði viðmiði eitt í lestri. Framfarir hafa verið mjög miklar. Verkefnið er unnið í samstarfi við Grænuvelli.
Það að lesa er því ekki aðeins tæki til að afla upplýsinga, heldur grundvallarfærni sem við þurfum til að vaxa sem einstaklingar. Læsir smáforritið verður opið og virkt yfir sumartímann og við hvetjum foreldra til að sinna lestri heimavið og viðhalda.
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |