Borgarhólsskóli hlýtur veglegan styrk fyrir þróunarverkefni

Í vikunni voru veittir styrkir úr Sprotasjóði leik-, grunn- og framhaldsskóla en samtals hluti 30 skólaþróunarverkefni styrki fyrir komandi skólaár. Sjóðurinn styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkaomndi skólastiga. Í voru áherslusvið sjóðsins þrjú; leikur sem leið til náms, gervigreind og læsi sem grunnþáttur menntunar.

Borgarhólsskóli hlaut veglegan styrk fyrir verkefnið Lítil skref á leið til læsis sem er samstarfsverkefni skólans, Grænuvalla og Miðstöð skólaþróunar Háskólans á Akureyri. Verkefnið hefur áður fengið styrk frá Mennta- og barnamálaráðherra.

Verkefnið miðar að því að skapa samfellu í læsisnámi frá leikskóla yfir í grunnskóla þar sem kennsluaðferðir hvors skólastigs fyrir sig fléttast saman og fá að njóta sín. Áhersla er lögð á heildstæða nálgun í læsisnámi þar sem samræða, tjáning, hlustun, lestur, mál- og lesskilningur, orðaforði og ritun fléttast saman í gegnum fjölbreytt verkefni sem eru merkingarbær og tengjast reynsluheimi barna og áhugamálum. Leikurinn einkennir læsisnámið í Grænuvöllum og í fyrstu bekkjum Borgarhólsskóla er kennt eftir Byrjendalæsi. Þessar tvær nálganir eiga sérlega vel saman og styðja vel hvort við aðra.

Nemendur fyrsta bekkjar skólans komu einstaklega vel út í Lesfimi skimun frá MMS og voru yfir landsmeðaltali. En 90,6% nemenda náðu fyrsta viðmiði og 46,9% ná viðmiði tvö.

Kolbrún Ada Gunnarsdóttir deildarstjóri og einn af verkefnastjórum tók við styrknum frá mennta- og barnamálaráðherra í mótttöku sem haldin var fyrir styrkþega.