- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Byrjendalæsi
Fiðringur á Norðurlandi er hæfileikakeppni grunnskólanna að fyrirmynd Skrekks í Reykjavík og Skjálftans á Suðurlandi. Þetta er í fimmta skipti sem Fiðringur fer fram og í ár tóku níu skólar þátt af Norðurlandi. Keppnin fór fram í Hofi á Akureyri og sigraði keppnina í ár.
Fiðringur hefur verið skylduvalgrein meðal nemenda í áttunda, níunda og tíunda bekk. Nemendur sömdu sitt eigið atriði og hafa æft af kappi alla vorönnina undir handleiðslu Karenar Erludóttur. Mikill áhersla er lögð á sjálfstæð og lýðræðisleg vinnubrögð og sér hópurinn alfarið um listræna útfærslu hvað varðar búninga, leikmynd, sviðhreyfingar, ljós og hljóð. Hápunkturinn er svo að hitta keppendur úr öðrum skólum og sýna afraksturinn á leiksviði með allri leikhústækninni og töfrunum. Atriðið fjallaði um kynferðisofbeldi og er reglulega áhrifaríkt. Keppnin er aðgengileg í spilara RÚV, sjá HÉR.
Við erum reglulega stolt og ánægð með nemendur okkar. Til hamingju með sigurinn.
|
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
