Covid smit meðal nemenda

Það eru staðfest covid smit meðal nemenda Borgarhólsskóla. Nemendur og starfsfólk viðkomandi teyma fara í sóttkví samkvæmt fyrirmælum frá smitrakningarteymi almannavarna. Við óskum eftir að allir hugi vel að persónulegum sóttvörnum næstu daga. Nemendur komi ekki í skólann hafi þeir einhver af eftirtöldum einkennum: hiti, hósti, kvefeinkenni, hálsbólga, slappleiki, þreyta, höfuðverkur, bein-/vöðvaverkir, skyndileg breyting á lyktar- eða bragðskyni, kviðverkir og niðurgangur.

Með því að smella á myndina má finna leiðbeiningar varðandi börn í sóttkví. Allar nánari upplýsingar má finna á covid.is

 

Við þurfum öll að vinna þetta saman til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu.

 


Athugasemdir