Áfram Borgó - keppni í skólahreysti

Fv. Regína Sólveig, Karen Linda, Hrafnhildur, Einar Örn og Kristján Ingi ásamt Selmdísi.
Fv. Regína Sólveig, Karen Linda, Hrafnhildur, Einar Örn og Kristján Ingi ásamt Selmdísi.

Skólahreysti hefur verið haldið síðan árið 2005. Hjónin Andrés Guðmundsson og Lára B. Helgadóttir eru frumkvöðlar að keppninni sem snýst um alhliða íþróttaupplifun byggð á almennri íþróttakennslu. Um er að ræða heilbrigða keppni milli skóla landsins þar sem bæði einstaklingsframtakið og liðsheildin skipta máli.

Um 40 skóla hringinn í kringum landið bjóða upp á skólahreysti sem hluta af skyldunámi og þannig er því fyrirkomið í Borgarhólsskóla. Í gær fór fram Skólahreysti á Norðurlandi í Íþróttahöllinni á Akureyri.

Þau Einar Örn Elíasson, Hrafnhildur Barkardóttir, Karen Linda Sigmarsdóttir, Kristján Ingi Smárason og Regína Sólveig Guðmundsdóttir, skipa lið skólans. Þjálfari liðsins er Selmdís Þráinsdóttir, íþróttakennari.

Keppt er í upphífingum, armbeygjum, dýfum, hreystigreip og hraðabraut. Lið Borgarhólsskóla skipaði að lokum áttunda sæti af níu. Vel gert Borgarhólsskóli. Krakkarnir stóðu sig reglulega vel og voru skólanum sínum og samfélagi til sóma. Sömuleiðis fór vösk sveit nemenda á unglingastigi til að horfa á keppnina, hvetja og styðja sitt lið.

Skólahreysti er viðurkennd af og nýtur opinbers stuðnings menntamálaráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis, norrænu ráðherranefndarinnar, Íþrótta & Ólympíusambands Íslands og sveitarfélaga.


Athugasemdir