- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Byrjendalæsi
Um þessar mundir fer fram íþróttavika Evrópu. Ólympíuhlaup ÍSÍ for fram kringum skólann í dag. Hlaupið kallaðist áður Norræna skólahlaupið og hefur verið fastur liður í skólastarfi margra grunnskóla allt frá 1984 þegar það fór fyrst fram. Með Ólympíuhlaupi ÍSÍ er leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og líðan.
Hringurinn var um kílómetri að lengd og nemendur höfðu 60 mínútur til að hlaupa eins marga hringi og þeir gátu. Hlaupaleiðin að þessu sinni var egnum Grundargarð að Skrúðgarði, niður Reykjaheiðarveg þar sem íþróttakennararnir Guðrún Kristinsdóttir og Ingólfur Freysson sátu á bekk með morgunbollann og hvöttu nemendur áfram í sólinni. Áður en lagt var yfir Búðaránna að skólanum heyrðust hvatningaróp nemenda á Grænuvöllum. Húsvörðurinn okkar hafði smíðað vatnsbrunn á Skólagarðinum svo nemendur gátu fengi sér sopa á leiðinni auk þess sem má finna vatnsbrunn Orkuveitu Húsavíkur við Kvíabekk.
Þau allra hörðustu hlupu þrettán hringi. Það er sama veglengd og frá Húsavík og að suðurenda flugbrautarinnar á Húsavíkurflugvelli. Eftir hvern hring fékk hver nemandi stimpil. Þátttaka var reglulega góð og virkni nemenda til mikillar fyrirmyndar. Metnaður fyrir hlaupið var áberandi og umgjörð öll hjá íþróttakennurum til sóma. Samanlagður kílómetrafjöldi nemenda í hlaupinu var 1439 km en hringvegurinn um Ísland er 1321 km.
|
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
