Fleiri Lítil skref

Sprotasjóður leik- grunn- og framhaldsskóla hefur úthlutað 64.370.000 kr. til tuttugu skólaþróunarverkefna fyrir skólaárið 2026–2027. Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik-, grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga. Áherslusvið sjóðsins árið 2026 voru grunnþættir menntunar; lýðræði og mannréttindi og nýjar kennsluaðferðir og námsmat með sjálfstæði og virkni nemenda að markmiði.

Verkefnið okkar Lítil skref á leið til læsis hlaut 3,2 milljónir og við erum afar þakklát að geta haldið áfram með þetta verkefni.