Heimsókn frá samfélagslöggunni

Fræðsla samfélagslögreglu miðar að því að auka öryggi borgaranna og koma í veg fyrir afbrot. Samfélagslöggur hafa undanfarið verið að heimsækja skóla til að miðla upplýsingum um öryggi og forvarnir. Umfjöllunarefnið getur verið; samskipti, netöryggi, ofbeldi eða umferðaröryggi. Ekki þarf að greiða fyrir fræðslu frá lögreglunni. Lögreglumenn sem sinna fræðslunni starfa líka sem lögreglumenn á vakt og eru heimsóknirnar hluti starfs þeirra.

Nýlega heimsótti samfélagslöggan á Húsavík nemendur í áttunda og níunda bekk. Þeir Kjartan Páll og Jón Óskar fræddu nemendur um samfélagsmiðla og samfélagsmiðlanotkun, stafrænt ofbeldi, hatursorðræðu, afskipti lögreglu af ungmennum, sakhæfi og vopnaburð. Nemendur fengu að prófa og skoða búnað lögreglumanna eins og stunguvesti og handjárn. Nemendur sýndu mikinn áhuga og miklar umræður sköpuðust um málið. Við þökkum lögreglunni kærlega fyrir góða heimsókn.