- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Byrjendalæsi
Hvað eiga bingó með heimilisfólki á Hvammi, rifsberjahlaup, skapandi listastarf og pylsugrill í skógarferð sameiginlegt? Allt er þetta hluti af fjölbreyttu námi nemenda í fimmta og sjötta bekk Borgarhólsskóla þar sem nærsamfélagið verður að lifandi kennslustofu og tengsl milli fólks eru í fyrirrúmi.
Þrisvar í viku taka nemendur þátt í fjölbreyttu listastarfi þar sem þeir kynnast ólíkum listgreinum yfir skólaárið. Í einum hópnum er sérstök áhersla lögð á nærsamfélagið, samveru og upplifun. Þar fá nemendur tækifæri til að kynnast fólki, starfsemi og þeim fjölbreyttu möguleikum sem Húsavík og nágrenni hafa upp á að bjóða.
Nemendur hafa meðal annars spilað bingó með heimilisfólki á Hvammi, fengið STEM-kynningu hjá Huld og heimsótt listasmiðjuna Fum & Fok þar sem Kristrún Ýr tók vel á móti þeim og bauð upp á skapandi verkefni. Þá heimsóttu þeir Grænuvelli og fóru í útikennslu í Holt með elstu börnum leikskólans.
Náttúran hefur einnig verið nýtt til náms og samveru. Nemendur tíndu rifsber og bjuggu til hlaup og nýttu í heimilisfræði. Einnig var farið í skógarferð þar sem kveiktur var eldur og pylsur grillaðar. Á milli heimsókna er áhersla lögð á hópleiki, spil og útiveru sem efla vináttu, samvinnu og samskipti.
Við þökkum öllum þeim sem hafa tekið á móti nemendum okkar og lagt sitt af mörkum. Það er ómetanlegt að eiga samfélag þar sem fólk, stofnanir og fyrirtæki opna dyr sínar fyrir nemendum. Slík samvinna auðgar skólastarfið, styrkir tengsl nemenda við heimabyggðina og sýnir þeim fjölbreytt tækifæri samfélagsins.
Bestu kennslustofurnar eru nefnilega stundum utan veggja skólans og bestu kennararnir geta verið fólkið í kringum okkur.




|
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
