Hvalaskólinn út á flóa

Nemendur fimmta bekkjar hafa undanfarið lært um hvali og lífríki sjávar og tekið þátt í verkefnum Hvalaskólans á fjölbreyttan og skemmtilegan hátt. Nemendur þekkja ýmislegt um hvali fyrir og lærðu að tegundir skiptast í tvo undirflokka og hvað einkennir hvorn hóp. Sömuleiðis fjallað um tegundir kringum Ísland einsog hnúfubak, steypireið, höfrunga, hnísur og háhyrninga.

Nemendur gerðust sérfræðingar í einni hvalategund og útbjuggu hugtakakort með upplýsingum um sína tegund. Horft var á heimildarþætti um bæði háhyrninga og hnúfubaka sem vakti athygli og áhuga nemenda. Farið var í heimsókn á Hvalasafnið þar sem Garðar Þröstur leiddi nemendur í allan sannleik um safnið á lifandi og fræðandi hátt.

Lokahnykkur verkefnisins var hvalaskoðunarferð sem Norðursigling býður nemendum í. Þann dag var gott í sjóinn og fyrsti hvalurinn rétt fyrir utan Húsavíkurhöfn. Fylgst var með þremur hnúfubökum sem var bæði spennandi og eftirminnilegt. Verkefnið var lærdómsríkt og voru nemendur mjög áhugasamir og sýndu dugnað í vinnu sinni. Við þökkum bæði Hvalasafninu og Norðursiglingu fyrir samstarfið.