- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Byrjendalæsi
Hver ræður ferðinni í stafrænum heimi? Við sjálf, samfélagsmiðlarnir eða algóritmarnir sem fylgjast með hverju skrefi okkar? Nemendur í sjötta og níunda bekkjar fengu áhugaverða og mikilvæga fræðslu í dag frá Netvís um netöryggi, samfélagsmiðla og áhrif stafræns umhverfis á daglegt líf okkar.
Nemendur sjötta tóku þátt í Netumferðarskólanum þar sem fjallað var um örugga og ábyrga netnotkun, persónuvernd og mikilvægi þess að vera meðvitaður um þær upplýsingar sem við deilum. Fræðslan byggðist á samtali, verkefnum og virkri þátttöku nemenda.
Nemendur í níunda fengu fræðsluerindið Algóritminn sem elur mig upp. Þar var meðal annars fjallað um hvernig samfélagsmiðlar velja það efni sem birtist okkur, hvernig þeir hafa áhrif á skoðanir okkar, líðan og hegðun og hvers virði persónuupplýsingar okkar eru í stafrænum heimi.
Hver ákveður hvað við sjáum á netinu? Hvers vegna birtist okkur ákveðið efni aftur og aftur? Og er þjónustan í raun ókeypis þegar við greiðum fyrir hana með upplýsingum um okkur sjálf?
Þetta eru spurningar sem eiga erindi við okkur öll.
Fræðslan er mikilvægur þáttur í að efla stafrænt læsi, gagnrýna hugsun og ábyrgð nemenda. Markmiðið er að þau öðlist þekkingu og sjálfstraust til að nýta tæknina á eigin forsendum.
|
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
