Í sveitasælu

Nemendur fjórða bekkjar fóru í sveitaferð í dag í blíðskaparveðri. Ferðin er fastur liður í starfinu með vísan í aðalnámskrá grunnskóla um að nemendur átti sig á að þeir séu hluti af stærra samfélagi og geti sett sig inn í málefni nærsamfélagsins. Nemendur hafa auk þess fjallað um hringrásir, samspil manns og náttúru og nýtingu auðlinda að undanförnu.

Fyrst var ferðinni heitið að Hraunkoti í Aðaldal sem nemendur skoðuðu fjölbreyttan búskap. Sauðburður stendur sem hæst en þar voru líka kýr, naut, kálfar og kiðlingar. Dýrin heilluðu nemendur. Frá Hraunkoti var ekið upp í Reykjahverfi að Hveravöllum að skoða ylræktina. Þar áðu nemendur og fengu sér nesti. Ekið var út í Saltvík hvar nemendur fengu að fara á hestbak og skoða hestabúskapinn.

Við þökkum þeim sem tóku á móti nemendum okkar kærlega fyrir gestrisnina og móttökurnar.