- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Byrjendalæsi
Stjórnmál eru hluti af námi tíundu bekkinga í þjóðfélagsfræði. Nýlega lauk lotu um íslensk stjórnmál þar sem nemendur sóttu m.a. sveitarstjórnarfund hjá sveitarstjórn Norðurþings. Eitt af verkefnum lotunnar var að kynna sér stjórnmálaflokk og stefnumál hans. Í kjölfarið áttu nemendur að búa til sinn eigin stjórnmálaflokk og vinna sín eigin málefni.
Lotunni lauk með kynningu á stjórnmálaöflum nemenda þar sem foreldrum og forráðafólki var boðið að hlýða á stefnumál framboðanna. Að því loknu var gengið til kosninga. Ekki verður fjallað um niðurstöðuna sérstaklega en verkefnið gekk reglulega vel og tókst með ágætum. Áherslur lotunnar voru m.a. að nemendur gætu sýnt fram á þekkingu á íslenskum stjórnmálum, þekki stærstu stjórnmálaflokka landsins, útskýrt og rökrætt þrískiptingu ríkisvalds og tekið virkan þátt í Skólaþingi hjá Alþingi.
|
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
