Jarðsetning

Nemendur sjöunda bekkjar jarðsetja þrestina
Nemendur sjöunda bekkjar jarðsetja þrestina

Þegar bæjarbúar vakna að morgni og ganga til vinnu sinnar er sprúðlandi fuglasöngur í hverju tré. Skógarþrestir fljúga á milli trjánna og kannski orðnir heldur kenndir enda reyniberin víða orðin ansi þroskuð.

Tveir þrestir sem gætu verið hjón flugu á rúðu í einni kennslustofu skólans þannig að þeir drápust. Nemendur í sjöunda bekk höfðu umsjón með jarðsetningu á fuglunum í morgun á skólalóðinni.


Athugasemdir