- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Byrjendalæsi
Í náttúrugreinum er áhersla hjá unglingarnir á umhverfisfræði. Unnið er með skapandi og fræðandi verkefni þar sem þau útbjuggu heimatilbúinn kaffiskrúbb. Notuð voru einföld og náttúruleg hráefni – kaffi, kókosolía og sykur.
Með verkefninu lærðu nemendur um endurnýtingu og sjálfbærni, meðal annars hvernig hægt er að nýta kaffikorg sem annars færi til spillis. Þau ræddu einnig um umhverfisvænni valkosti í daglegu lífi og mikilvægi þess að minnka sóun.
Verkefnið tengdi saman bóklegt nám og verklega reynslu á skemmtilegan og lifandi hátt og nemendur fengu að sjálfsögðu að taka skrúbbinn sinn með heim.
Samhliða kaffiskrúbbnum bjuggu nemendur til svokallað fílatannkrem í hópum. Í verkefninu skoðuðu nemendur efnahvarf vetnisperoxíðs og fylgdust með hraðri myndun froðu og losun súrefnis. Kalíumjoðíð var notað sem hvati sem flýtti fyrir efnahvarfinu.
|
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
