Konur mæta í níu af hverjum tíu viðtölum

Undanfarin ár höfum við skráð þátttöku foreldra og aðstandenda í samtali heimilis og skóla eftir kyni. Konur mæta einar í viðtal í 46% tilfella. Saman mæta foreldrar í 46% tilfella og 8% feður einir. Það er breyting frá því í síðasta samtali þegar mæður mættu einar í 41% tilfella. Það fækkar lítillega feðrum sem mæta einir og sömuleiðis að foreldrar mæti saman í viðtal.

Það breytir því ekki að konur mæta í um níu af hverju tíu samtölum heimilis og skóla þar sem fer fram stöðumat á hverju barni. Segir m.a. í Aðalnámská grunnskóla: „Virk hlutdeild og þátttaka foreldra í námi og starfi barna sinna er forsenda þess að foreldrar geti axlað þá ábyrgð sem þeir bera á farsælu uppeldi og menntun barna sinna“.

Eins og fram kemur í grunnskólalögum bera foreldrar ábyrgð á uppeldi barna sinna. Foreldrar gæta hagsmuna barna sinna og eiga að stuðla að því að þau stundi nám sitt. Foreldrar fylgist með námsframvindu barna sinna í samvinnu við þau og kennara þeirra og eiga að greina skólanum frá þeim atriðum sem kunna að hafa áhrif á námsframvindu, ástundun og hegðun. Foreldrar skulu hafa samráð við skólann um skólagöngu barna sinna, fylgjast með og styðja við skólagöngu þeirra og námsframvindu og stuðla að því að börnin mæti úthvíld í skólann og fylgi skólareglum.

 


Athugasemdir