- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Byrjendalæsi
Einn reynslumesti kennari skólans hefur látið af störfum eftir tæpa fjóra áratugi í starfi við skólann. Hafnfirðingurinn Guðrún Kristinsdóttir útskrifaðist frá Íþróttakennaraskólanum á Laugarvatni. Hún hóf kennsluferil sinn í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði en fluttist til Húsavíkur árið 1986 og hóf þá störf við Barnaskóla Húsavíkur og síðar Borgarhólsskóla.
Guðrún hefur lengst af verið umsjónarkennari og í lykilhlutverki í daglegu starfi með nemendum og foreldrum. Þá má gera ráð fyrir að hún hafi kennt hundruðum nemenda og allavega tveimur kynslóðum Húsvíkinga. Guðrún hefur lagt ríka áherslu á heilsu og hreyfingu auk þess er hún mikil áhugamanneskja um lestur og ljóð.
Við þökkum Guðrúnu fyrir ómetanlegt framlag til skólastarfs í hart nær fjóra áratugi. Með fagmennsku, umhyggju og elju hefur hún markað spor í líf ótal nemenda og fjölskyldna þeirra á þeim tíma. Við óskum Guðrúnu innilega til hamingju með glæsilegan starfsferil og þökkum henni af heilum hug fyrir samfylgdina. Megi nýr kafli verða henni jafn farsæll og ánægjulegur og sá sem hún skilur nú eftir sig.

|
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
