Lesið saman á degi læsis

Á alþjóðadegi læsis síðastliðinn þriðjudag komu nemendur í öðrum og sjöunda bekk saman til að lesa. En það eru vinabekkir. Nemendur settust saman tvö og tvö og lásu fyrir hvert annað.

Þau yngri spreyttu sig í upplestri með stuðningi þeirra eldri og þau eldri lásu fyrir yngri. Úr varð notaleg læsisstund þar sem lesturinn fór á víxl og vinabekkir ræktuðu tengsl, spjalla og spila saman.