Lestrarvinir hefja störf

Lestrarvinir sem hefja störf að sinni
Lestrarvinir sem hefja störf að sinni

Í vikunni hefja lestrarvinir störf í skólanum með nýjum hætti. Lestur fer fram á bókasafni skólans og mun bókasafnaskennari stýra lestrinum. Yngstu nemendur skólans koma á safnið og lesa fyrir vini skólans og spjalla saman. Allir lestrarvinir skrifa undir trúnaðaryfirlýsingu og má sjá mynd af þeim hér sem hefja störf að sinni. Mögulega fjölgar þeim þegar líður á skólaárið.

Við erum afar þakklát vinum okkar sem leggja okkur lið, gefa tíma sinn og auka þjónstuna við nemendur okkar.