Lífverur á skólalóðinni

Nemendur í öðrum bekk hafa unnið með lífverur og náttúruna að undanförnu og fléttað saman við byrjendalæsi, náttúru- og stærðfræði. Krakkarnir lásu bækur úr bókaflokknum Milli himins og Jarðar um köngulær, ánamaðka og humlur. Í kjölfarið var fari í vettvangsferð um skólalóðina og safnað hverskonar lífverum sem voru greindar í víðsjá og stækkunargleri. Þá gerðu nemendur tölfræðigögn og útbjuggu meðal annars súlurit sem tengist stærðfræðinni.

Dæmi um hæfniviðmið sem unnið er með að nemandi; hafi kynnst lífverum í náttúrulega umhverfi, einkennum lífvera, fæðukeðjum og algengum lífverum í sínu nánasta umhverfi. Í íslensku var lögð áhersla á orðaforða og taka þátt í umræðum og í stærðfræðinni að safna og flokka eftir eiginleikum, skrá og lesa úr súluritum auk þess að nýta sér viðeigandi hjálpargögn.