- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Byrjendalæsi
Matsferill er nýtt námsmatskerfi sem dregur upp heildstæða mynd af námslegri stöðu og framförum nemenda reglulega yfir skólagönguna. Tilgangurinn er að stuðla að bættum námsárangri nemenda á Íslandi með reglubundnu og markvissu mati. Í marsmánuði munu nemendur í fjórða til og með tíunda bekk þreyta framvindu- og stöðupróf í íslensku (með áherslu á lesskilning) og stærðfræði.
Kennarar hafa undanfarið fengið kynningar á ferlinu og matstækinu sem er samræmt um allt land. Prófin eru rafræn og mæla aðeins afmarkaða þætti en ekki skólastarf í heild sinni. Ekki er tilefni til þess að nemendur læri sérstaklega fyrir prófin en kennarar eru þessa dagana að leyfa nemendum að prófa sýnispróf í stafræna prófakerfinu.
Sýnis- og æfingapróf má sjá HÉR.
Við leggjum áherslu á að nemendur leggi sig fram við próftökuna og geri sitt allra besta.
Áhugasöm geta lesið meira um prófin með því að smella HÉR.
|
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
