Menntastefna Norðurþings

Nýlega var menntastefna Norðurþings 2026-2031 samþykkt í sveitarstjórn Norðurþings sem byggir á skólastefnu frá 2020. Innan hennar má m.a. finna læsisstefnu. Samkvæmt lögum um leik- og grunnskóla skal hvert sveitarfélag setja sér stefnu um skólahald og nær þessi nýja menntastefna yfir alla starfsemi leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla Norðurþings.

Stefnan var nýlega kynnt á fundi starfsfólks. Í stefnunni eru gildin metnaður til þess að setja háleit markmið og skýr viðmið um skólastarf, ábyrgð á því að styðja skólasamfélagið til framfara og markvissra umbóta, traust til þess að starfsfólk framkvæmi menntastefnu sveitarfélagsins og virðing fyrir skoðunum, umhverfi og sérstöðu sveitarfélagins.

Við hvetjum foreldra og alla haghafa til að kynna sér stefnuna, sjá hér Menntastefna Norðurþings.