Nemendur kepptu í Skólahreysti

Flottir fulltrúar Borgarhólsskóla í Skólahreysti.
Flottir fulltrúar Borgarhólsskóla í Skólahreysti.

Skólahreysti hefur verið haldið síðan árið 2005. Hjónin Andrés Guðmundsson og Lára B. Helgadóttir eru frumkvöðlar að keppninni sem snýst um alhliða íþróttaupplifun byggð á almennri íþróttakennslu. Um er að ræða heilbrigða keppni milli skóla landsins þar sem bæði einstaklingsframtakið og liðsheildin skipta máli.

Um 40 skóla hringinn í kringum landið bjóða upp á skólahreysti sem hluta af skyldunámi og þannig er því fyrir komið í Borgarhólsskóla. Í gær fór fram Skólahreysti á Norðurlandi í Íþróttahöllinni á Akureyri. Þau Brynja Katrín Benediktsdóttir, Gestur Aron Sörenson, Rakel Hólgeirsdóttir og Sigurður Helgi Brynjúlfsson tóku þátt fyrir skólans hönd og enduðu í 5. sæti. Sömuleiðis voru tveir varamenn í liðinu þau Brynja Kristín Elíasdóttir og Valur Snær Guðmundsson. Vösk sveit nemenda á unglingastigi til að horfa á keppnina, hvetja og styðja sitt lið. Þjálfari liðsins er Hrund Thorlacius, íþróttakennari.

Keppt er í upphífingum, armbeygjum, dýfum, hreystigreip og hraðabraut. Lið Borgarhólsskóla skipaði að lokum fimmta sæti af átta. Krakkarnir stóðu sig reglulega vel og voru skólanum sínum og samfélagi til sóma.

Skólahreysti er viðurkennt af og nýtur opinbers stuðnings menntamálaráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis, norrænu ráðherranefndarinnar, Íþrótta & Ólympíusambands Íslands og sveitarfélaga.

Skólinn þakkar liðinu sínu fyrir góða keppni og óskum við hópnum til hamingju með árangurinn.


Athugasemdir