Niðurstöður Matsferils aðgengilegar

Niðurstöður úr stöðu- og framvinduprófum Matsferils hafa nú verið birtar og geta foreldrar og forsjáraðilar nálgast þær á Mínum síðum á Ísland.is. Þar er hægt að skoða niðurstöður barna í lesskilningi og stærðfræði og fylgjast með framvindu þeirra í námi.

Matsferill er ætlaður til að styðja við nám og kennslu með því að veita nemendum, foreldrum og skólum skýra mynd af stöðu og framförum nemenda. Niðurstöðurnar nýtast meðal annars við að skipuleggja næstu skref í námi og kennslu út frá þörfum hvers nemanda.

Niðurstöðurnar er að finna undir Menntun á Mínum síðum.

Svona finnur þú niðurstöðurnar:

  1. Veldu Menntun á forsíðunni á Mínum síðum Ísland.is

  2. Veldu grunnskóli ef það er ekki sjálfvalið

  3. Veldu nafn barnsins þíns

  4. Farðu í námsmat

  5. Þar má finna niðurstöður úr stöðu- og framvinduprófunum og lesfiminni.

Skólinn mun fara yfir og greina niðurstöðurnar með það að markmiði að nýta þær sem best til að styðja við áframhaldandi nám og kennslu. Niðurstöðurnar veita mikilvægar upplýsingar um stöðu nemenda og framfarir. Þær verða hafðar til hliðsjónar við skipulagningu náms, einstaklingsmiðaðan stuðning og þróun skólastarfs.